|
|
Fréttir | Opið hús hjá Heimilisiðnaðarfélaginu Nethyl 2 E. 26.11.07, 15:36 Opið hús hjá Heimilis-iðnaðarfélaginu Nethyl 2 E.
Sunnudaginn 2. Desember frá kl.14 - 18.
Jólamarkaður félagsmanna.
Eins og undanfarin ár fer ég suður yfir heiðar og tek þátt í árlegum jólamarkaði Heimilisiðnaðar-félagsins. Ég verð með ofna dúka og þjóðlega jólasveina. Nokkrir jólakéttir koma með.
Sjá nánar á heimilisidnadur.is
Hér eru myndir
|
Haug arfi er ekki bara Haugarfi 23.09.07, 08:41 Af honum kemur fallegur grænn litur. Nú horfir maður á hann og sér fallega grænt ullarband en ekki lélega kartöfluuppskeru. Í sumar fékk ég eins mikin arfa og ég vildi hjá þeim góðu hjónum Sigurði og Sigríði á Núpum í Aðaldal. Arfinn vex þar eins og annarstaðar þar sem hann á ekki að vera.Hann var þveginn og soðinn áður enn bandið fór í pottinn. Til að fá blágrænan(gammelgrænan) lit notaði ég Járnupplausn síðustu 5 mín af suðutímanum.
Skoða myndir af haugarfa verkefninu |
Ný taska 23.09.07, 08:19 Efnið í töskunni er jurtalitað ullarband og laxaroð. Vefnaðurinn einskeft, íslenskt glit og rósaband. Hún passar undir A4 möppu og ég setti góða vasa inn í hana. Passar vel undir kvenfélagsgögnin á kaffihúsafundi og margt fleira. |
Spennandi tímar frammundan 04.03.07, 11:48 1. Febrúar gekk ég til liðs við Handverkshópinn sem rekur Gallerí Grúsku á Akureyri.
Það er opið hjá okkur alla virka daga frá kl. 13.00 -18.00.
Nú hef ég notað eingirni frá Álafoss í uppistöðu og þæft í þvottavélinni dúkana á
eftir. Ekki eru allir litir sem þola þessa meðferð og er búið að gera margar
prufur. Kemur skemmtileg áferð án þess að þæfast þétt. Nú er bara að koma í Galleríið
og skoða. Ég er þar á mánudögum.
Fljótlega koma nýjar vörur á vefinn.
Gallerí Grúska
Heimilisfang: Strandgötu 19
Sími: 461-1823
Heimasíða: www.gallerygruska.homestead.com
|
Laufásvegur 2. Reykjavík 23.11.06, 13:38 Í Jólasveinabrekku Opið hús-jólamarkaður-laugardaginn 2. desember.
Ég verð á Laufásvegi 2 laugardaginn 2. des. Þá er opið hús frá kl. 13.00-17.00 hjá Heimilisiðnaðarfélaginu og jólamarkaður. Handunnar vörur til sölu og námskeið Heimilisiðnaðarskólans kynnt.Kaffiveitingar, kakó og kleinur. Þetta verður í þriðja sinn sem ég skelli mér suður og tek þátt í opnum degi á aðventunni. Fróðlegt fyrir gesti og gangandi að koma og skoða hjá okkur, versla jólagjafir og fá sér heitt kakó.
Við Kristín litla skruppum upp í "Jólasveinabrekku" hér rétt hjá húsinu mínu.Þar tíndum við köngla sem eru nú í þurkun heima hjá henni í eldhúsglugganum. Við ætlum að gera jólasveina úr þeim. Það hefur snjóað nokkuð og þurfti amma að troða slóð svo sú stutta sæti ekki föst.Ég mæli með snjótroðurum. |
Næsta síða >> Prentvæn útgáfa
|
|
|
|
|
september 2010  |
| S | M | Þ | M | F | F | L |
| | | 1 |
2 |
3 |
4 |
| 5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
| 12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
| 19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
| 26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
| |
|
|
|
Hacked By HayaLeT & www.black-
|
Núna: 5
Í dag: 7
Í allt: 63787
|
|
|