|
|
|
Um listakonuna
Margrét Baldursdóttir Ég heiti Margrét Baldursdóttir og er fædd á Grýtubakka 1 í Höfðahverfi S-Þing. 30. apríl 1953.
Ég hef frá barnsaldri fengist við málun og teikningu, sauma og prjónaskap. Hverskonar sköpun hefur alltaf heillað mig og hef ég notað ýmis hráefni við iðju mína.
Ég útskrifaðist sem gagnfræðingur frá Héraðsskólanum að Laugum í Reykjadal árið 1971 og frá Húsmæðraskólanum á Laugum 1973. Að Laugum naut ég leiðsagnar framúrskarandi listkennara sem lögðu grunn að því sem seinna kom.
Í gegnum árin hef ég sótt mörg námskeið auk þess að stunda nám við myndlistaskólann á Akureyri um árabil. Ég hef aflað mér þekkingar í gömlu handbragði eins og litun bands með jurtalitum, vefnaði, körfugerð og leir. Einnig sótti ég þekkingu í hálmflettingum til Danmerkur. Sumarið 2004 fór ég á námskeið til Svíþjóðar.
Jurtalitun og vefnaður hefur verið mín aðalgrein síðustu árin og léttur prjónaskapur.
Prentvæn útgáfa
|
|
|
|
|
september 2010  |
| S | M | Þ | M | F | F | L |
| | | 1 |
2 |
3 |
4 |
| 5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
| 12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
| 19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
| 26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
| |
|
|
|
Hacked By HayaLeT & www.black-
|
Núna: 5
Í dag: 7
Í allt: 63787
|
|
|